Ýmis þjónusta

Heilbrigðisþjónusta

Í fangelsum skulu fangar njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og almennt gildir, auk þeirrar sérstöku heilbrigðisþjónustu sem lög og reglur um fanga segja til um. Að höfðu samráði við Fangelsismálastofnun sér heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um og ber ábyrgð á heilbrigðisþjónustu við fanga í fangelsum, sbr. 22. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005.

Sálfræðiþjónusta

Tveir sálfræðingar eru í fullu starfi hjá Fangelsismálastofnun. Verksvið þeirra er fjölbreytt. Þeir sinna sálfræðilegri meðferð skjólstæðinga stofnunarinnar. Sálfræðingar veita og ráðgjöf varðandi vistun og meðferð fanga. Þá eru þeir ráðgefandi varðandi áfengis- og vímuefnameðferð fanga. Önnur verkefni sálfræðinga stofnunarinnar eru m.a. kennsla í Fangavarðaskólanum, fræðsla til starfsmanna, starfsmannamálefni og ýmis konar rannsóknir.

AA fundir

Vikulegir AA fundir eru haldnir í öllum fangelsum.

Fangaprestur

Fangelsismálastofnun skal sjá um að í fangelsum sé veitt sérhæfð þjónusta eins og t.d. prestsþjónusta. Á vegum þjóðkirkjunnar er starfandi fangaprestur sem heimsækir fangelsin reglulega.

Heimsókn frá fulltrúa Fangelsismálastofnunar

Fulltrúi frá Fangelsismálastofnun heimsækir fangelsin reglulega og talar við þá fanga sem þess óska.

Rauða Kross heimsóknir

Fangar geta óskað eftir heimsóknum "fangavina"sem eru sjálfboðaliðar Rauða Kross Íslands. Slíkar heimsóknir eru einkum ætlaðar þeim föngum sem litlar eða engar heimsóknir fá frá öðrum aðilum. Slíkar heimsóknir geta fangar fengið ca. hálfsmánaðarlega. Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Rauða Kross Íslands.

Félag aðstandenda fanga

http://www.adgat.net/

 

Að afplánun lokinni

Eftir afplánun geta fangar átt rétt á fjárhagsaðstoð frá sínu sveitarfélagi. Þeir geta jafnframt sótt um sérstakar húsaleigubætur, húsbúnaðarstyrk sem og félagslegt húsnæði. Sjá nánar.
 

 

 

Senda grein



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica