Starfsmenn

Fastir starfsmenn Fangelsismálastofnunar ríkisins eru um 100, þar af um 80 fangaverðir. Aðrir starfsmenn eru á skrifstofum eða í yfirstjórn fangelsanna og 15 starfa hjá aðalskrifstofu eða yfirstjórn stofnunarinnar.

Fangaverðir eru ráðnir og starfa samkvæmt reglugerð nr. 347/2007 um menntun fangavarða. Alla jafna eru menn settir fangaverðir um tíma og öðlast þannig starfsreynslu. Síðan er þeim gert að sækja Fangavarðaskólann og að svo búnu skipaðir í stöður og þeir þá orðnir embættismenn.

Helmingur starfsmanna eða 49 manns starfar við Fangelsið Litla-Hrauni. Hjá Fangelsunum á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. Hegningarhúsinu og Fangelsinu Kópavogsbraut 17, starfa samtals 23, Fangelsinu Kvíabryggju 8 og Fangelsinu Akureyri 4. Um 75% starfsmanna eru karlar og 25% konur.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins er Páll Egill Winkel.

-----

Ef þig langar í krefjandi og áhugavert starf því ekki að sækja um fangavarðarstarf?

Sem fangavörður getur þú:

Starfsumsókn, eyðublað

(Hægt er að fylla út umsóknina og prenta út úr Acrobat Reader, en vinsamlegast athugið að breytingar sem gerðar eru á skjölunum er ekki hægt að vista í skjalinu nema að þú sért með fulla útgáfu af Adobe Acrobat)

Senda grein



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica