Afplánun utan fangelsa

Endurkoma út í hið frjálsa samfélag getur reynst fanga erfið. Auk þeirrar þjónustu og meðferðar sem veitt er af starfsfólki í fangelsunum hefur Fangelsismálastofnun um margra ára skeið leitast við að aðlaga fanga að samfélaginu í áföngum með því að heimila þeim að afplána hluta refsingar utan fangelsis í meðferð eða endurhæfingu.

Samkomulag hefur verið gert við ýmsar stofnanir eða félagasamtök þar að lútandi. Slík afplánun er ávallt háð skilyrðum sem dómþoli undirritar áður en til vistunar kemur.

Senda grein



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica