Afplánun á meðferðarstofnunum Barnaverndarstofu skv. samningi

Árið 1998 gerðu Fangelsismálastofnun og Barnaverndarstofa með sér samkomulag um vistun fanga yngri en 18 ára sem endurnýjað var á árinu 1999. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að berist dómur til fullnustu þar sem yngri dómþoli en 18 ára er dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi skuli Barnaverndarstofu þegar tilkynnt um það og skal hún kanna hvort hún telji mögulegt að dómþoli afpláni refsingu sína á meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu, enda liggi að jafnaði fyrir vilji dómþola til slíkrar afplánunar. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að ungmenni sem úrskurðuð eru í gæsluvarðhald skuli sæta sömu málsmeðferð og skal slík vistun framkvæmd í samráði við rannsóknaraðila máls.

Senda grein



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica