Sjúkrahús/Aðrar stofnanir
Ef fangi er vistaður á sjúkrahúsi um stundarsakir eða allan refsitímann getur Fangelsismálastofnun leitað sérfræðiálits um nauðsyn og tilhögun slíkrar vistunar sbr. 1. mgr. 15. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005.
Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. laganna getur Fangelsismálastofnun leyft að fangi sé um stundarsakir eða allan refsitímann vistaður á heilbrigðis- eða meðferðarstofnun. Fangelsismálastofnun getur sett sérstök skilyrði fyrir vistun fanga þar.
Samkvæmt 12. gr. laga laga nr. 49/2005 telst fangi, sem lagður er í sjúkrahús, taka út refsingu meðan hann dvelst þar nema hann hafi sjálfur bakað sér veikindin á ótilhlýðilegan hátt eftir að hann hóf afplánun.
Réttargeðdeildin Sogni Ölfusi
Réttargeðdeildin hefur verið starfrækt frá árinu 1992. Hlutverk henner er að vista og annast þá sem dæmdir eru ósakhæfir skv. 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og úrskurðaðir eru í öryggisgæslu skv. 62. gr. sömu laga. Að auki er það hlutverk réttargeðdeildarinnar að vista geðsjúka sakhæfa einstaklinga sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald eða afplána refsingu í fangelsi.
Réttargeðdeildin Sogn í Ölfusi er ætluð fyrir 7 sjúklinga og er rekin af Sjúkrahúsi Suðurlands.
