Rafrænt eftirlit:
Samkvæmt 24. gr. a. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005 getur fangelsismálastofnun, ef dæmd fangelsisrefsing er 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi, leyft fanga að ljúka afplánun utan fangelsis enda hafi hann á sér búnað svo að unnt sé að fylgjast með ferðum hans. Þegar dæmd refsing er 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi er afplánun undir rafrænu eftirliti 30 dagar. Afplánun undir rafrænu eftirliti lengist um 2,5 daga fyrir hvern dæmdan mánuð og getur orðið 240 dagar hið mesta.
Skilyrði þess að rafrænt eftirlit komi til álita eru:
1. að fangi teljist hæfur til að sæta rafrænu eftirliti,
2. að fangi hafi fastan dvalarstað sem samþykktur hefur verið af fangelsismálastofnun,
3. að maki fanga, forráðamaður, nánasti aðstandandi eða húsráðandi samþykki að hann sé undir rafrænu eftirliti á sameiginlegum dvalarstað þeirra,
4. að fangi stundi vinnu, nám, sé í starfsþjálfun, meðferð eða sinni öðrum verkefnum sem fangelsismálastofnun hefur samþykkt og er liður í aðlögun hans að samfélaginu á ný,
5. að fangi hafi áður nýtt sér úrræði skv. 1. mgr. 24. gr. með fullnægjandi hætti,
6. að fangi hafi ekki rofið skilyrði rafræns eftirlits á síðastliðnum þremur árum,
7. að fangi eigi að jafnaði ekki mál til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum þar sem hann er kærður fyrir refsiverðan verknað enda sé málið rekið með eðlilegum hætti og dráttur því ekki af völdum fangans.
Rafrænt eftirlit skal bundið eftirfarandi skilyrðum:
1. að fangi sé undantekningarlaust á dvalarstað sínum frá kl. 18 – kl. 19 og frá kl. 23 – kl. 07 mánudaga til föstudaga og frá kl. 21 til kl. 07 laugardaga og sunnudaga; jafnframt skal fangi vera á dvalarstað sínum ef hann sækir ekki vinnu, nám, starfsþjálfun, meðferð eða önnur verkefni sem fangelsismálastofnun hefur samþykkt á virkum degi vegna veikinda eða af öðrum ástæðum nema að höfðu samráði við fangelsismálastofnun,
2. að fangi neyti ekki áfengis eða ávana- og fíkniefna,
3. að fangi fremji ekki refsiverðan verknað.
Auk þess má ákveða að rafrænt eftirlit verði bundið eftirfarandi skilyrðum:
1. að fangi hlíti fyrirmælum fangelsismálastofnunar um umgengni við aðra menn og iðkun tómstundastarfa,
að fangi hafi ekki rofið skilyrði rafræns eftirlits á síðastliðnum þremur árum,
2. að fangi sæti sérstakri meðferð sem fangelsismálastofnun ákveður.
Heimilt er að krefjast þess að fangi undirgangist rannsókn á öndunarsýni eða blóð- og þvagrannsókn. Synjun fanga á slíkri rannsókn gildir sem rof á skilyrðum rafræns eftirlits.
Áður en fullnusta á fangelsisrefsingu með rafrænu eftirliti hefst skal kynna fanga ítarlega þær reglur sem gilda um rafrænt eftirlit og staðfesting hans fengin á því að hann vilji hlíta þeim.
Rof á skilyrðum fullnustu utan fangelsis
Þegar fangi stundar ekki þá vinnu eða nám sem var forsenda fullnustu utan fangelsis, eða strjúki hann frá stofnun eða heimili, brjóti reglur þess eða rjúfi skilyrði fyrir fullnustu getur fangelsismálastofnun ákveðið að hann verði fluttur aftur í afplánun í fangelsi. Sama gildir telji stofnun eða heimili brostnar forsendur fyrir áframhaldandi dvöl fanga þar.
Gefa skal fanga kost á að tjá sig áður en ákveðið er að flytja hann í fangelsi á ný nema brotið sé þess eðlis að flutningur þoli enga bið.
Ofangreindar breytingar tóku gildi 1. október 2011 með lögum nr. 129/2011 um breytingu á lögum um fullnustu refsinga nr. 49/2005.
