Fangelsismálastofnun auglýsir eftir 4 fangavörðum til starfa í Fangelsinu Hólmsheiði

Markmið Fangelsismálastofnunar við rekstur fangelsa eru þessi helst:
- Að afplánunin fari fram með öruggum hætti þannig að réttaröryggi almennings sé tryggt
- Að draga úr líkum á endurkomu fanga í fangelsi.
- Að föngum sé tryggð örugg og vel skipulögð afplánun, að mannleg og virðingarverð samskipti séu höfð í fyrirrúmi og að fyrir hendi séu aðstæður og umhverfi sem hvetja fanga til að takast á við vandamál sín

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf fangavarðar felst m.a. í umsjón ákveðinna verkefna og veita leiðbeiningar til skjólstæðinga.
Um skilyrði þess að vera ráðinn fangavörður fer skv. ákvæðum reglugerðar nr. 347/2007.


Hæfnikröfur

- Iðnmenntun og/eða háskólamenntun kostur
- Gott vald á íslensku, talaðri sem ritaðri
- Góð kunnátta í ensku nauðsynleg
- Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Geta brugðist skjótt við breytilegum aðstæðum
- Góð kunnátta og færni á tölvur og helstu forrit s.s. word, excel og Lotus notes
- Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.
Sækja skal um starfið merkt "Störf fangavarða á Hólmsheiði" á heimasíðu Fangelsismálastofnunar www.fangelsi.is fyrir fyrir 15. nóvember nk.
Áætlað er að þeir umsækjendur sem fá starfstilboð geti hafið störf 1.janúar 2019 eða fljótlega eftir það.
Stofnunin áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 15.11.2018

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson - HalldorValur@fangelsi.is - 520 5063
Jakob Magnússon - Jakob@fangelsi.is - 520 5000


FMS Fangelsið Hólmsheiði
Nesjavallaleið 9
110 Reykjavík


Sækja um starf Til baka