Sálfræðingur
Laust er til umsóknar starf sálfræðings til að sinna sálfræðiþjónustu í fangelsum landsins á vegum Fangelsismálastofnunar. Starfshlutfall er 100%. Ráðið er í starfið til eins árs, með möguleika á framlengingu. Starf sálfræðinga hjá Fangelsismálastofnun er tvíþætt, annars vegar klínísk þjónusta og hins vegar réttarsálfræðileg þjónusta
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðal verkefna sálfræðings eru:
- Sálfræðilegar greiningar
- Einstaklings- og hópameðferðir
- Framkvæmd áhættumats og úrvinnsla
- Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk
- Þátttaka í almennri stefnumótun
Hæfnikröfur
- Staðfest starfsréttindi frá Landlækni til að starfa sem sálfræðingur.
- Þekking, reynsla og áhugi á sviði réttarsálfræði er æskileg.
- Reynsla af réttarvörslukerfinu er æskileg.
- Þekking á fíknimeðferð er æskileg.
- Þekking og færni í hugrænni atferlismeðferð og hvatningarviðtalstækni (motivational interviewing) er kostur.
- Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar.
- Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi við aðra.
- Lögð er áhersla góða samstarfshæfni og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Fylla skal út umsóknir á heimasíðu fangelsismálastofnunar www.fangelsi.is eða www.starfatorg.is
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2019
Nánari upplýsingar veitir
Sólveig Fríða Kjærnested - SolveigFrida@fangelsi.is - 520 5000
Jakob Magnússon - Jakob@fangelsi.is - 520 5000
FMS Fang.stofn, yfirstjórn
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes