Varðstjóri - Litla Hraun

Fangelsið Litla-Hrauni var stofnað 8. mars 1929 og hefur starfað samfellt síðan. Fangelsið er lokað fangelsi með níu deildir sem rúma allt að 87 karlfanga. Þar starfa um 70 starfsmenn, fangaverðir sem sinna almennri fangavörslu og verkstjórn, auk annarra starfsmanna.




Fangelsismálastofnun óskar eftir öflugum leiðtoga í starf varðstjóra á Litla-Hrauni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf varðstjóra felst m.a. í stjórnun í samráði við forstöðumann og staðgengil hans, kennslu og leiðbeiningum til starfsmanna, skýrslugerð, öryggiseftirliti, móttöku og skráningu fanga ásamt því að eiga samskipti við þá og leiðbeina þeim.

Hæfnikröfur

Hafa lokið námi frá fangavarðarskólanum


Haldbær reynsla af störfum innan fullnustukerfisins


Þekking og reynsla af stjórnun æskileg


Gott viðmót, jákvæðni og afburðar hæfni í mannlegum samskiptum


Góð kunnátta og færni á tölvur og helstu forritum s.s. word, excel, Lotus notes, One Systems


Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni


Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.


Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.




Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 18.12.2020

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson - HalldorValur@fangelsi.is - 520-5063
Sigurveig Helga Jónsdóttir - helga@fangelsi.is - 520-5000


FMS Litla-Hraun yfirstjórn
v/Hraunteig
820 Eyrarbakki


Sækja um starf Til baka