Fangaverðir - Litla Hraun

Fangelsismálastofnun leitar eftir áhugasömu starfsfólki til starfa við fangavörslu í fangelsinu Litla-Hrauni. Unnið er í vaktavinnu og um er að ræða afleysingar út árið með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Í boði eru bæði hlutastörf og fullt starf. Hlutastörfin geta hentað vel með námi þar sem unnið er aðallega um helgar. 

Litla-Hraun er lokað fangelsi fyrir karlkyns fanga og er staðsett á Eyrarbakka. 

Við leitum að einstaklingum sem eru framúrskarandi í samskiptum, tilbúnir til að vinna í krefjandi umhverfi og vilja láta gott af sér leiða.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf fangavarðar felst m.a. í leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga, eftirliti, verkstjórn og þátttöku í allri daglegri starfsemi fangelsa.

Hæfnikröfur

  • Góð almenn menntun
  • Reynsla af vinnu með fólki
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, samviskusemi, stundvísi og vandvirkni
  • Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. 

Starfshlutfall er 25 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2021

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður - HalldorValur@fangelsi.is - 520 5900


FMS Litla-Hraun yfirstjórn
v/Hraunteig
820 Eyrarbakki


Sækja um starf Til baka