Sálfræðingur hjá Fangelsismálstofnun

Við leitum að framsýnum og lausnarmiðuðum sálfræðingi í faglegt teymi á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar. Um er að ræða 50% starf.

Á meðferðarsviði starfa þrír sálfræðingar, þrír félagsráðgjafar og tveir vímuefnaráðgjafar sem vinna í nánu samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar og geðheilsuteymi fangelsanna. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.

Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi, Fangelsin Hólmsheiði og Litla-Hraun sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi. Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð í Reykjavík en sinnir jafnframt reglubundnum heimsóknum í fangelsin.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat á áhættuhegðun og úrvinnsla
  • Meðferðaráætlanir 
  • Einstaklingsmeðferðir, tengt skaðlegri hegðun
  • Fræðsla til skjólstæðinga og starfsfólks fangelsa 
  • Eftirfylgd á reynslulausn
  • Þátttaka í almennri stefnumótun 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur
  • Þekking, reynsla eða áhugi á sviði réttarsálfræði 
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og jákvæðni
  • Sjálfstæði og sveiganleiki
  • Þekking og reynsla í áhættumatsgerð, hugrænni atferlismeðferð  og áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational interviewing) æskileg
  • Þekking eða reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar, aðstöðu til heilsuræktar og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi. 

Starfshlutfall er 50 %
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Anna Kristín Newton - annakristin@fangelsi.is


FMS Fang.stofn, yfirstjórn
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes


Sækja um starf Til baka