Launa- og mannauðsfulltrúi

Fangelsismálastofnun leitar að sjálfstæðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf launa- og mannauðsfulltrúa. Starfið felur í sér umsjón og eftirlit með fjölbreyttum verkefnum á sviði launa- og mannauðsmála. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón og eftirlit með launavinnslu og kjaramálum stofnunarinnar
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk varðandi launa- og kjaramál
  • Umsjón og eftirlit með skráningum og uppgjörum í mannauðskerfi Orra og MyTimePlan
  • Eftirlit með framkvæmd kjarasamninga
  • Samskipti við starfsfólk, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
  • Þátttaka í  endurnýjun og viðhaldi jafnlaunakerfis
  • Ýmsar greiningar, samantektir og úrvinnsla á sviði kjaramála 
  • Gerð ráðningarsamninga og önnur verkefni á sviði mannauðs- og launamála

Hæfnikröfur

  • Góð þekking og reynsla af launa- og kjaramálum 
  • Þekking á túlkun kjara- og stofnanasamninga
  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun er kostur
  • Reynsla af vakta- og viðverukerfi MyTimePlan og/eða Vinnustundar og mannauðskerfinu Oracle er æskileg
  • Mjög góð kunnátta og færni í Excel 
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Góð færni í íslensku.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund

Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.

Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi, Fangelsin Hólmsheiði og Litla-Hrauni sem eru lokuð fangelsi og Fangelsin Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi.  

Við ráðningar í störf hjá Fangelsismálastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar og fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði. 

 

Starfshlutfall er 100 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 06.10.2025

Nánari upplýsingar veitir

Gróa H. Rósinkransa Jónsdóttir - groahj@fangelsi.is - 520-5000


FMS Fang.stofn, yfirstjórn
Laugavegur 166
105 Reykjavík


Sækja um starf Til baka