Embætti aðalvarðstjóra hjá Fangelsismálastofnun ríkisins - Fangelsið Kvíabryggja
Hjá Fangelsismálastofnun ríkisins eru lausar til umsóknar tvær stöður aðalvarðstjóra við Fangelsið Kvíabryggju. Gert er ráð fyrir því að forstjóri Fangelsismálastofnunar skipi í embættið til fimm ára frá og með 1. janúar 2026.
Um ný störf er að ræða sem er liður í umbótum og endurskipulagningu á starfsstigum innan fangelsanna. Sá sem hlýtur skipun í embætti mun þurfa að sækja stjórnunarnámskeið á vegum Fangelsismálastofnunar ríkisins eða námskeið sem stofnunin ákveður að millistjórnendur þurfi að sækja.
Helstu upplýsingar um vinnustaðinn og starfið
Fangelsismálastofnun ríkisins heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Stofnunin fer með yfirstjórn fangelsismála, m.a. umsjón með rekstri fangelsa og tryggir að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti í samræmi við lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Stofnunin leggur áherslu á vellíðan í starfi og jákvæðan starfsanda. Hjá stofnuninni starfa alls um 160 starfsmenn, flestir fangaverðir, á fimm mismunandi starfsstöðvum, fjórum fangelsum og skrifstofu.
Í Fangelsinu Kvíabryggju starfa 13 fangaverðir. Aðalvarðstjóri heyrir undir forstöðumann Fangelsisins Kvíabryggju.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samkvæmt innri reglum um starfsstig innan fangelsa gegnir aðalvarðstjóri hlutverki millistjórnanda með ábyrgð á vaktstjórn, verkstjórn og samhæfingu starfa.
Meginverksvið og ábyrgð aðalvarðstjóra eru:
- Stýra og fylgja eftir verkaskiptingu og verkferlum í fangavörslu.
- Tryggja öryggi og skipulag innan fangelsis á sinni vakt.
- Sjá um mönnun vakta og minniháttar starfsmannamál.
- Taka þátt í móttöku og vistun fanga samkvæmt verklagsreglum.
- Veita leiðsögn og styðja við fangaverði.
- Tekur þátt í þjálfun og fræðslu er viðkemur starfinu.
- Standa skil á vaktarskýrslu og öðrum skjölum til deildarstjóra/forstöðumanns.
- Sinna stjórnendaeftirliti með lægri starfsstigum.
Hæfi
Til að hljóta skipun í embætti fangavarðar þarf viðkomandi að hafa lokið námi í fangavarðafræðum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um fullnustu refsinga. Leggja má að jöfnu sambærilegt nám sem viðurkennt er af Fangelsismálastofnun ríkisins að fenginni umsögn stjórnar Fangavarðafélags Íslands. Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. innri reglna um starfsstig innan fangelsa skal umsækjandi hafa gegnt starfi fangavarðar í að minnsta kosti tvö ár frá útskrift til að hljóta setningu eða skipun í starf aðalvarðstjóra.
Hæfnikröfur
Leitað er eftir einstaklingi með eftirfarandi menntun, reynslu og hæfni
Menntun
- Nám í fangavarðafræðum skv. hæfiskröfum.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Reynsla
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi, þar á meðal stjórnunarreynsla.
Persónulegir eiginleikar/hæfni
- Forystuhæfni til að leiða fólk, stjórna verkefnum og taka ákvarðanir.
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
- Jákvætt, lausnamiðað og umbótasinnað hugarfar.
- Mjög góð samskiptafærni og vilji til þess að vinna með fólki.
- Góð skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum.
- Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Um vaktavinnu er að ræða, þó er ekki gert ráð fyrir að aðalvarðstjóri standi næturvaktir. Sá sem skipaður er í embættið nýtur réttinda og ber skyldur skv. lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fangelsismálastofnunar ríkisins við ráðningar. Fangelsismálastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt Jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknum skal skilað inn á vef Starfatorgs. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli skal vakin á því að áður en að skipun aðalvarðstjóra kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10. gr. laga um fullnustu refsinga. Í því felst upplýsingaöflun aftur í tímann m.a. úr sakaskrá og skrám lögreglu.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 14.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Birgir Guðmundsson, forstöðumaður - Birgir@fangelsi.is - 520-5980
FMS Kvíabryggja
Grundarfjörður
350 Grundarfjörður