Félagsráðgjafi - Meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar
Langar þig að starfa þar sem þú hefur raunveruleg áhrif á fólk og samfélagið í heild?
Fangelsismálastofnun leitar að framsýnum og lausnarmiðuðum félagsráðgjafa í öflugt og faglegt teymi á meðferðarsviði.
Á sviðinu starfa félagsráðgjafar, sálfræðingar og vímuefnaráðgjafar í nánu samstarfi við annað starfsfólk fangelsa og heilbrigðisstarfsfólk.
Lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fagmennsku og mannlega nálgun í endurhæfingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita félagslega ráðgjöf og stuðning
- Halda einstaklingsviðtöl og hópafræðslu
- Framkvæma innkomumöt og móta einstaklingsáætlanir
- Styðja við afplánunarferli og endurkomu í samfélagið
- Vinna í samstarfi við aðrar stofnanir og þjónustuaðila
- Veita fræðslu og handleiðslu til starfsfólks
- Taka þátt í þróunar- og umbótaverkefnum, bæði innlendum og erlendum
Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
- Þekking og reynsla af starfi sem félagsráðgjafi er æskilegt
- Þekking og reynsla á sviði réttarfélagsráðgjafar er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar og lausnamiðuð nálgun er mikilvæg
- Góð tölvufærni
- Reynsla af áhugahvetjandi samtalstækni (MI)
- Þekking á áhættumati, hugrænni atferlismeðferð, hvatningsviðtalstækni (MI) og áfallamiðaðri nálgun er æskileg
- Ástríða fyrir þróun úrræða sem styðja við endurhæfingu og samfélagslega aðlögun skjólstæðinga
- Þekking eða reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda er mikilvæg
- Góð samskiptafærni og teymisvinna
- Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar, og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi.
Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi; Fangelsin á Hólmsheiði og á Litla-Hrauni sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi.
Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð á skrifstofu Fangelsismálastofnunar en starfið fer að miklu leyti fram í fangelsum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fangelsismálastofnunar við ráðningar.
Fangelsismálastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt Jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Karen Dröfn Hafþórsdóttir - karen.hafthorsdottir@fangelsi.is
FMS Fangelsismálastofnun ríkisins (06501)
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes