Sálfræðingur - Fangelsismálastofnun

Við leitum að framsýnum og lausnamiðuðum sálfræðingi í faglegt teymi á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar. 

Á meðferðarsviði starfa sálfræðingar, félagsráðgjafar og vímuefnaráðgjafar sem vinna í nánu samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar og heilbrigðisstarfsfólk innan fangelsa. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kortlagning áhættuhegðunar og gerð meðferðaráætlana
  • Sértæk meðferðarvinna til að draga úr ofbeldishegðun/hegðunarvanda
  • Einstaklingsmeðferð og hópafræðsla fyrir skjólstæðinga
  • Fræðsla og leiðsögn til starfsfólks fangelsa 
  • Meðferð, stuðningur og leiðsögn til skjólstæðinga á reynslulausn eða á öðrum stigum afplánunar
  • Samráð og samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuaðila
  • Þátttaka í umbótastarfi, þróunarverkefnum og þverfaglegu samstarfi

Hæfnikröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sálfræðinga
  • Reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda 
  • Þekking og reynsla á sviði réttarsálfræði er kostur
  • Reynsla af áhættumatsgerð, hugrænni atferlismeðferð, áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational interviewing) og áfallamiðaðri nálgun æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun er mikilvæg
  • Góð samstarfshæfni, jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
  • Góð tölvufærni og þekking á One CRM skjalakerfinu er kostur
  • Góð íslensku og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi. 

Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi, Fangelsin Hólmsheiði og Litla-Hraun sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi. Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð á skrifstofu Fangelsismálastofnunar en starfið fer að miklu leyti fram í fangelsum. 

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fangelsismálastofnunar við ráðningar. Fangelsismálastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt Jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Karen Dröfn Hafþórsdóttir, sviðsstjóri - karen.hafthorsdottir@fangelsi.is - 520-5000


FMS Fangelsismálastofnun ríkisins (06501)
Laugavegur 166
105 Reykjavík


Sækja um starf Til baka