Matráður í mötuneytið á Litla Hrauni

Fangelsismálastofnun óskar eftir að ráða í eina stöðu matráðs í mötuneyti fangelsisins Litla-Hraun. 

Leitað er að einstaklingi með ástríðu fyrir góðum mat og þjónustulund.

Mötuneytið er bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga á Litla-Hrauni og á Hólmsheiði.  

Um er að ræða 80% starf sem unnið er í vaktavinnu allt árið um kring.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. október.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sér um matseld og fylgir áherslum um hollustu, næringargildi og eldamennsku frá grunni. 
  • Innkaup eftir þörfum í samráði við yfirmann mötuneytis.
  • Vinnur að umbótum í matseld og gæðum máltíða í samræmi við stefnu yfirmanns mötuneytis.
  • Aðstoð við gerð matseðla.
  • Eftirlit með að reglum um hollustuhætti sé fylgt.
  • Eftirlit með nýtingu matvæla og að koma í veg fyrir sóun.
  • Leysir af yfirmann mötuneytis í fjarveru hans.
  • Þátttaka í pökkun, afhendingu máltíða og sendingum til Hólmsheiðar.
  • Tekur þátt í eftirliti með skjólstæðingum í samráði við yfirmann mötuneytis og matráð.
  • Sinnir öðrum verkefnum mötuneytis samkvæmt fyrirmælum yfirmanns mötuneytis.
  • Akstur með máltíðir til Hólmsheiðar um helgar.

Hæfnikröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hafa lokið matartækninámi eða sambærilegu námi.
  • Hafa 1-3 ára reynsla af störfum í mötuneyti eða eldhúsi. 
  • Ökuréttindi. 

Persónulegir eiginleikar:

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
  • Geta unnið sjálfstætt og eftir ákveðnum verklagsreglum og gæðakröfum.
  • Nákvæmni, hreinlæti og ábyrgð í störfum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Vilji til að tileinka sér ný vinnubrögð og taka þátt í umbótum í þjónustu og gæðum.
  • Góð íslenskukunnátta. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Vinnutími er frá 07:00 -14:30  og um er að ræða vaktavinnu.  Unnið er eftir 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.

Athygli er vakin á því að áður en til ráðningar kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

 

Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 20.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sævar Birnir Steinarsson, Yfirmaður mötuneytis - saevar.steinarsson@fangelsi.is - 520-5900


FMS Litla-Hraun yfirstjórn
v/Hraunteig
820 Eyrarbakki


Sækja um starf Til baka