Viltu vera á skrá? Sumarstörf á Litla-Hrauni og Sogni

Fangelsismálastofnun leitar að áhugasömu fólki til að starfa við fangavörslu sumarið 2024. Opið er fyrir umsóknir á skrá vegna sumarstarfa og haft verður samband við umsækjendur ef störf losna.

Starf fangavarða er fjölbreytt og felst m.a. í leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga, eftirliti, verkstjórn og þátttöku í allri daglegri starfsemi fangelsa. Um er að ræða gefandi en jafnframt krefjandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins. 

Fangelsið Litla-Hrauni er lokað fangelsi fyrir karlkyns afplánunarfanga og er staðsett á Eyrarbakka. Fangelsið Sogni eru skilgreint sem opið fangelsi. Það er staðsett í Ölfusi og rekið í nánu samstarfi við Litla-Hraun.

Við leitum að lausnamiðuðum einstaklingum sem geta brugðist skjótt við breytilegum aðstæðum, eru góðir í samskiptum og finnst gaman að vinna með fólki.  Um er að ræða bæði störf í dagvinnu og vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga
  • Eftirlit og verkstjórn 
  • Þátttaka í allri daglegri starfsemi fangelsa

Hæfnikröfur

  • Góð almenn menntun
  • Jákvætt viðhorf og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
  • Metnaður, sjálfstæði og stundvísi
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.

Það að starfa í fangelsi er góð reynsla og getur verið sérstaklega gefandi viðbót við nám þess sem stefnir t.d. á að starfa sem sálfræðingur, iðjuþjálfi, lögfræðingur, félagsráðgjafi eða hjúkrunarfræðingur.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2024

Nánari upplýsingar veitir

Steinunn Bóel Stefánsdóttir - steinunnb@fangelsi.is


FMS Fangelsismálastofnun ríkisins (06501)
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes


Sækja um starf Til baka