Aðstoðarvarðstjórar - Fangelsið Hólmsheiði

Fangelsið Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Fangelsið opnaði formlega í júní 2016 og er því nýjasta fangelsi landsins.

Lausar eru til umsóknar þrjár stöður aðstoðarvarðstjóra við fangelsið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf aðstoðarvarðstjóra felst m.a. í stjórnun í samráði við varðstjóra og forstöðumann, ásamt því að bera ábyrgð á vakt í fjarveru varðstjóra. Aðstoðarvarðstjóri sinnir einnig kennslu og leiðbeiningum til starfsmanna, skýrslugerð, öryggiseftirliti, móttöku og skráningu fanga. Stór þáttur starfsins felst í daglegum samskiptum og leiðbeiningum til fanga.

Hæfnikröfur

Hafa lokið námi frá fangavarðarskólanum
Haldbær reynsla af fangavörslu
Þekking og reynsla af stjórnun kostur
Gott viðmót, jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
Góð kunnátta og færni á tölvur og helstu forritum s.s. word, excel, Lotus notes, One Systems
Gott vald á íslensku og ensku
Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2019

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson - HalldorValur@fangelsi.is - 5205060
Böðvar Einarsson - bodvar@fangelsi.is - 5205060


FMS Fangelsið Hólmsheiði
Nesjavallaleið 9
110 Reykjavík


Sækja um starf Til baka