Sumarstarf - Fangavörður Hólmsheiði
Fangelsismálastofnun leitar eftir áhugasömu starfsfólki til starfa við fangavörslu sumarið 2020.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf fangavarðar felst m.a. í leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga, eftirliti, verkstjórn og þátttöku í allri daglegri starfsemi fangelsa.
Hæfnikröfur
Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni
Gott vald á íslensku og ensku
Góð tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 06.04.2020
Nánari upplýsingar veitir
Halldór Valur Pálsson - HalldorValur@fangelsi.is - 5205000
Sigurveig Helga Jónsdóttir - helga@fangelsi.is - 5205000
FMS Fangelsið Hólmsheiði
Nesjavallaleið 9
110 Reykjavík