Sumarstarf - Fangavörður Litla-Hrauni og Sogni

Fangelsismálastofnun leitar eftir áhugasömu starfsfólki til starfa við fangavörslu sumarið 2020.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf fangavarðar felst m.a. í leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga, eftirliti, verkstjórn og þátttöku í allri daglegri starfsemi fangelsa.

Hæfnikröfur

Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni
Gott vald á íslensku og ensku
Góð tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 06.04.2020

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson - HalldorValur@fangelsi.is - 520 5000
Sigurveig Helga Jónsdóttir - helga@fangelsi.is - 520 5000


FMS Litla-Hraun yfirstjórn
v/Hraunteig
820 Eyrarbakki


Sækja um starf Til baka