Sumarstarf í mötuneyti á Litla-Hrauni

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í mötuneytinu okkar á Litla-Hrauni í sumar. 

Litla-Hraun er lokað fangelsi fyrir karlkyns afplánunarfanga og er staðsett á Eyrarbakka. Mötuneytið býður upp á fjölbreyttan mat fyrir starfsfólk og fanga sem eldaður er frá grunni. 

Um er að ræða 60% starf og unnið er á 6 tíma dag- og helgarvöktum.  Umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára eða eldri

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoð við matseld
  • Uppvask og þrif
  • Undirbúningur og frágangur

Hæfnikröfur

  • Góð þjónustulund
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Skipulagshæfni, stundvísi og vandvirkni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 60 %
Umsóknarfrestur er til og með 19.05.2022

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson, Forstöðumaður - HalldorValur@fangelsi.is


FMS Litla-Hraun yfirstjórn
v/Hraunteig
820 Eyrarbakki


Sækja um starf Til baka