Sumarstörf á Litla-Hrauni og Sogni

Fangelsismálastofnun leitar eftir áhugasömu fólki til starfa við fangavörslu í sumar í fangelsunum á Litla-Hrauni og Sogni. 

Fangelsið Litla-Hrauni er lokað fangelsi fyrir karlkyns afplánunarfanga og er staðsett á Eyrarbakka og Sogn eru skilgreint sem opið fangelsi og er staðsett í Ölfusi. 

Við leitum að jákvæðum einstaklingum sem eru framúrskarandi í samskiptum, til í að vinna í krefjandi umhverfi og vilja láta gott af sér leiða. Um er að ræða bæði störf í dagvinnu og vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára eða eldri. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga 
  • Eftirlit og verkstjórn 
  • Þátttaka í allri daglegri starfsemi fangelsa

Hæfnikröfur

  • Góð almenn menntun
  • Gott viðmót, jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
  • Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.05.2022

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Valur Pálsson - HalldorValur@fangelsi.is


FMS Litla-Hraun yfirstjórn
v/Hraunteig
820 Eyrarbakki


Sækja um starf Til baka