Sálfræðingur hjá fangelsismálstofnun
Við leitum að framsýnum og lausnarmiðuðum sálfræðingi í faglegt teymi á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar. Um er að ræða 80% starf.
Á meðferðarsviði starfa þrír sálfræðingar, þrír félagsráðgjafar og tveir vímuefnaráðgjafar sem vinna í nánu samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar og geðheilsuteymi fangelsanna. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.
Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi, Fangelsin Hólmsheiði og Litla-Hraun sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi. Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð á skrifstofu Fangelsismálastofnunar í Reykjavík en sinnir jafnframt reglubundnum heimsóknum í fangelsin
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mat á áhættuhegðun og úrvinnsla
- Meðferðaráætlanir
- Einstaklings- og hópmeðferðir, tengt skaðlegri hegðun
- Fræðsla til skjólstæðinga og starfsfólks fangelsa
- Eftirfylgd á reynslulausn
- Þátttaka í almennri stefnumótun
Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur
- Þekking, reynsla eða áhugi á sviði réttarsálfræði
- Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og jákvæðni
- Sjálfstæði og sveignaleiki
- Þekking og reynsla í áhættumatsgerð, hugrænni atferlismeðferð og áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational interviewing) æskileg
- Þekking eða reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar, aðstöðu til heilsuræktar og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi.
Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 19.08.2022
Nánari upplýsingar veitir
Anna Kristín Newton, Sviðsstjóri meðferðarsviðs - annakristin@fangelsi.is
FMS Fangelsismálastofnun ríkisins (06501)
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes