Fangelsismálastofnun leitar að félagsráðgjafa

Við leitum að framsýnum og lausnarmiðuðum félagsráðgjafa í faglegt teymi á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar. Starfshlutfall 80% eða eftir samkomulagi.

Á meðferðarsviði starfa þrír sálfræðingar, þrír félagsráðgjafar og tveir vímuefnaráðgjafar sem vinna í nánu samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar og geðheilsuteymi fangelsanna. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þverfaglegt meðferðarstarf ásamt meðferðar- og stuðningsþjónustu
  • Einstaklings- og hópmeðferðir 
  • Stuðningur og ráðgjöf 
  • Félagsleg ráðgjöf og stuðningur fyrir aðstandendur
  • Fræðsla til skjólstæðinga og starfsfólks fangelsa 
  • Eftirfylgd á reynslulausn 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
  • Þekking, reynsla og áhugi á sviði réttarfélagsráðgjafar er æskileg
  • Þekking eða reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og jákvæðni
  • Reynsla af áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational interviewing) er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar, aðstöðu til heilsuræktar og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi. 

Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi, Fangelsin Hólmsheiði og Litla-Hraun sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi. Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð á skrifstofu Fangelsismálastofnunar í Reykjavík en sinnir jafnframt reglubundnum heimsóknum í fangelsin. 

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.05.2023

Nánari upplýsingar veitir

Anna Kristín Newton, sviðstjóri meðferðarsviðs - annakristin@fangelsi.is
Eygló Rós Gísladóttir, mannauðsstjóri - eyglo.gisladottir@fangelsi.is


FMS Fangelsismálastofnun ríkisins (06501)
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes


Sækja um starf Til baka