Sumarstörf í fangelsum
Fangelsismálastofnun leitar að áhugasömu fólki til að starfa við fangavörslu í sumar. Í boði eru sumarstörf í fjórum fangelsum víðsvegar um landið.
Fangelsið Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi fyrir öll kyn, með aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Fangelsið er staðsett við Nesjavallaleið í Reykjavík.
Fangelsið Litla-Hrauni er lokað fangelsi fyrir karlkyns afplánunarfanga og er staðsett á Eyrarbakka.
Fangelsin Kvíabryggju og Sogni eru skilgreind sem opin fangelsi. Fangelsið Sogni er staðsett í Ölfusi og rekið í nánu samstarfi við Litla-Hraun. Fangelsið Kvíabryggju er staðsett við Grundarfjörð á Snæfellsnesi.
Við leitum að jákvæðu fólki sem er framúrskarandi í samskiptum og langar að vinna í lifandi og krefjandi starfsumhverfi. Um er að ræða bæði störf í dagvinnu og vaktavinnu. Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga
- Eftirlit og verkstjórn
- Þátttaka í allri daglegri starfsemi fangelsa
Hæfnikröfur
- Góð almenn menntun
- Jákvætt viðhorf og góð færni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í teymum
- Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
Það að starfa í fangelsi er góð reynsla og getur verið sérstaklega gefandi viðbót við nám þess sem stefnir t.d. á að starfa sem sálfræðingur, iðjuþjálfi, lögfræðingur, félagsráðgjafi eða hjúkrunarfræðingur.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Bóel Stefánsdóttir - mannaudur@fangelsi.is
FMS Fangelsismálastofnun ríkisins (06501)
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes